Enski markvörðurinn Scott Carson er farinn frá enska knattspyrnufélaginu Manchester City eftir sex ára dvöl. Lék hann aðeins tvo leiki á árunum tveimur.
Carson hefur verið þriðji markvörður Man. City alla þessa tíð og lék einn leik í úrvalsdeildinni tímabilið 2020-21 og svo einn leik í Meistaradeild Evrópu á tímabilinu á eftir.
Á þessum sex árum vann Man. City 11 titla en fékk hinn 39 ára gamli Carson ekki verðlaunapening í öllum tilfellum vegna lítillar spilamennsku.