Manchester United hefur sett sig í samband við Sporting varðandi kaupin á sænska framherjanum Viktor Gyökeres. Sky Sports greinir frá þessu.
United hefur mikinn áhuga á að fá Svíann til liðs við sig en Ruben Amorim, stjóri liðsins, er mikill aðdáandi eftir að hafa stýrt honum hjá Sporting.
Gyökeres átti magnað tímabil í Portúgal en hann skoraði 39 mörk og gaf sjö stoðsendingar í deildinni er Sporting varð portúgalskur meistari.
United er í framherjaleit og er Gyökeres efstur á lista hjá félaginu. Ekki er vitað hvort Rasmus Höjlund verði áfram hjá félaginu en Daninn sagði í viðtali í gær að hann vildi vera áfram og berjast fyrir sæti sínu í liðinu.