Hollendingurinn Louis van Gaal, fyrrverandi stjóri Manchester United, sagði í viðtali að Manchester United væri ekki fótboltafélag heldur viðskiptafélag.
„Manchester United er ennþá viðskiptafélag, ekki fótboltafélag. Ég hef sagt það áður, það er alltaf erfitt þegar stjórinn ræður ekki hvaða leikmenn koma til félagsins,“ sagði van Gaal í viðtali við Sky Sports.
Van Gaal stýrði United í tvö tímabil og var látinn fara þrátt fyrir að vinna enska bikarinn með félaginu.
Á löngum ferli hefur van Gaal stýrt stórliðum eins og Barcelona, Bayern München og Ajax.