City tilkynnir komu Alsíringsins

Rayan Ait-Nouri skrifar undir hjá Manchester City.
Rayan Ait-Nouri skrifar undir hjá Manchester City. Ljósmynd/Manchester City

Manchester City hefur tilkynnt komuna á alsírska bakverðinum Rayan Ait-Nouri frá Wolves.

Talið er að City greiði 31 milljón punda fyrir Ait-Nouri að auki fimm milljónir í árangurstengdar greiðslur.

Hinn 23 ára gamli Ait-Nouri hefur verið í stóru hlutverki hjá Úlfunum síðan hann gekk til liðs við þá árið 2020.

Ait-Nouri mun ferðast með Manchester City til Bandaríkjanna og keppa á HM félagsliða. City mætir Wydad frá Marokkó á miðvikudaginn í næstu viku. 

 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert