Daninn færist nær stjórastól Tottenham

Thomas Frank gæti verið að taka við Tottenham.
Thomas Frank gæti verið að taka við Tottenham. AFP/Justin Tallis

Enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham Hotspur leitar að knattspyrnustjóra eftir að Ange Postecoglou var rekinn á dögunum.

Knattspyrnustjóri Brentford, Daninn Thomas Frank, er talinn langlíklegastur til að vera ráðinn sem arftaki hans eftir að hafa gert frábæra hluti hjá Brentford á undanförnum sjö árum.

Frank á tvö ár eftir af samningi sínum við Brentford en vill ólmur taka við Tottenham. Talið er að hann sé með 10 milljóna punda riftunarákvæði í samningi sínum og segir Sky Sports að Brentford sé búið að samþykkja að hefja viðræður við Tottenham um félagaskipti danska knattspyrnustjórans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert