Bukayo Saka, sóknarmaður Arsenal, verður ekki í leikmannahópi enska landsliðsins í knattspyrnu þegar liðið heimsækir Andorra í undankeppni HM 2026 í dag.
Thomas Tuchel landsliðsþjálfari greindi frá því á fréttamannafundi í gær að Saka hefði einungis náð einni æfingu með enska liðinu í vikunni.
Gaf þjálfarinn ekkert upp hvort Saka yrði með í næsta leik, vináttulandsleik gegn Senegal á þriðjudag.
Conor Gallagher, miðjumaður Atlético Madríd, verður sömuleiðis ekki með í leiknum í dag og Ollie Watkins, sóknarmaður Aston Villa, er þá haldinn heim á leið vegna smávægilegra meiðsla.