Sá dýrasti fer til Arsenal

Kepa Arrizabalaga er á leið til Arsenal.
Kepa Arrizabalaga er á leið til Arsenal. AFP/Glyn Kirk

Enska knattspyrnufélagið Arsenal hefur samið við spænska markvörðinn Kepa Arrizabalaga um að ganga til liðs við félagið frá nágrönnunum í Chelsea.

The Athletic greinir frá því að Kepa, sem er þrítugur, sé með fimm milljóna punda kaupákvæði í samningi sínum við Chelsea og að Arsenal muni virkja það.

Kepa lék að láni hjá Bournemouth á síðasta tímabili og stóð sig vel. Þegar Chelsea keypti hann frá Athletic Bilbao á 80 milljónir evra sumarið 2018 varð Kepa dýrasti markvörður frá upphafi. Stendur það met enn.

Hann mun berjast við landa sinn David Raya um markvarðarstöðuna hjá Arsenal.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert