Fyrrverandi Arsenal-maður í fjögurra ára fangelsi

Emmanuel-Thomas fagnar marki ásamt Carlos Vela í leik með Arsenal …
Emmanuel-Thomas fagnar marki ásamt Carlos Vela í leik með Arsenal árið 2010. AFP/Olly Greenwood

Enski knattspyrnumaðurinn Jay Emmanuel-Thomas hefur verið dæmdur til fjögurra ára fangelsvistar fyrir stórfellt eiturlyfjasmygl.

Emmanuel-Thomas, sem ólst upp hjá Arsenal og þótti mikið efni á sínum tíma, skipulagði smygl á 60 kg af kannabis frá Taílandi til Bretlands.

Var hann handtekinn við komuna á London Stansted flugvöllinn í september síðastliðnum þar sem eiturlyfin voru gerð upptæk og viðurkenndi svo sök fyrir dómi á dögunum.

Emmanuel-Thomas var á mála hjá Greenock Morton þegar hann var handtekinn og rifti skoska félagið samningi hans við handtökuna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka