Jason Wilcox er að taka við sem nýr yfirmaður knattspyrnumála hjá enska félaginu Manchester United, en hann hefur sinnt starfi tæknilegs stjóra frá því á síðasta ári.
The Athletic greinir frá því að Wilcox taki við starfinu sem Sir Dave Brailsford hefur sinnt undanfarið eftir að Dan Ashworth var látinn taka pokann sinn undir lok síðasta árs.
Brailsford mun áfram vinna hjá Man. United og verður yfirmaður íþróttamála.