Manchester City fær bakvörð Úlfanna

Rayan Ait-Nouri.
Rayan Ait-Nouri. AFP/Paul Ellis

Manchester City hefur fest kaup á Alsíringnum Rayan Ait-Nouri frá Wolves. Félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano greinir frá þessu. 

City greiðir rúmar 40 milljónir punda fyrir Ait-Nouri sem hefur verið í lykilhlutverki hjá Wolves undanfarin tímabil.

Ait-Nouri, sem er 23 ára, er sókndjarfur vinstri bakvörður en hann skoraði fjögur mörk og lagði upp sjö fyrir Úlfana í deildinni á þessari leiktíð.

Bæði Ait-Nouri og Hollendingurinn Tijjani Reijnders fara í læknisskoðun hjá City um helgina og verða með félaginu á HM félagsliða. 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert