Fyrsta tilboð United í sóknarmanninn

Bryan Mbeumo átti magnað tímabil með Brentford.
Bryan Mbeumo átti magnað tímabil með Brentford. AFP/Henry Nicholls

Enska knattspyrnufélagið Manchester United hefur lagt fram fyrsta tilboð í Bryan Mbeumo, leikmann Brentford.

Samkvæmt The Athletic býður United 45 milljónir punda í sóknarmanninn plús tíu milljónir í árangurstengdar greiðslur.

Mbeumo, sem er 25 ára, lék stórkostlega með Brentford á síðustu leiktíð, skoraði 20 mörk og lagði upp átta í 38 deildarleikjum.

Fyrr í vikunni greindi The Athletic frá að Mbeumo hefði mikinn áhuga á að ganga til liðs við United. Það þykir þó líklegt að Brentford hafni fyrsta tilboðinu en talið er að félagið vilji fá 60 milljónir punda fyrir kamerúnska sóknarmanninn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert