Enski knattspyrnumaðurinn Liam Delap er genginn til liðs við enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea.
Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum en framherjinn, sem er 22 ára gamall, skrifaði undir sex ára samning á Stamford Bridge.
Hann kemur til félagsins frá Ipswich þar sem hann skoraði 12 mörk í ensku úrvalsdeildinni á nýliðnu keppnistímabili.
Chelsea borgar í kringum 30 milljónir punda fyrir framherjann sem ákvað að velja Chelsea fram yfir Manchester United sem hafði einnig mikinn áhuga á honum.