Sonur Bruno Fernandes, fyrirliða enska knattspyrnufélagsins Manchester United, æfði með FH hér á landi á dögunum en hann er einungis fjögurra ára gamall.
Eiginkona Fernandes, Ana Pinho, greindi frá þessu á samfélagsmiðlinum Instagram en hún var stödd hér á landi á dögunum ásamt börnunum þeirra tveimur, þeim Matilde sem er fædd í janúar árið 2017 og Goncalo.
Helga Björnsdóttir, eiginkona Kjartans Henry Finnbogasonar, birti upprunalegu myndina á Instagram, sem Pinho deildi svo, en systir hennar Hólmfríður Björnsdóttir er gift landsliðsmanninum Jóhanni Berg Guðmundssyni.
Börn Jóhanns og Hólmfríðar ganga í sama einkaskóla og börn Fernandes-hjónanna í Manchester og hefur myndast gott vinasamband þeirra á milli í gegnum börnin.