Nýliðar Sunderland í ensku úrvalsdeildinni hafa gengið frá kaupum á franska miðjumanninum Enzo Le Fée. Hann skrifar undir fjögurra ára samning hjá félaginu.
Le Fée kemur frá Roma á Ítalíu en hann lék með Sunderland að láni á seinnihluta nýafstaðins tímabils.
Sunderland nýtir ákvæði í lánssamningum um að ef liðið kæmist upp um deild myndi það kaupa Le Fée. Sunderland tryggði sér sæti í úrvalsdeildinni eftir ótrúlegan 2:1-sigur gegn Sheffield United í úrslitaleik umspilsins.
Samkvæmt Sky Sports greiðir Sunderland 20 milljónir punda fyrir Frakkann sem gerir hann að dýrasta leikmanni í sögu félagsins.