Enska knattspyrnukonan Fran Kirby hefur ákveðið að leggja landsliðsskóna á hilluna eftir að hafa verið tjáð að hún yrði ekki í lokahópi Englands fyrir EM 2025 í Sviss.
Kirby er 31 árs sóknartengiliður sem varð Evrópumeistari með Englandi á heimavelli sumarið 2022.
Lengst af lék hún með Chelsea og varð þar Englandsmeistari sjö sinnum á níu árum. Núna leikur Kirby með Brighton & Hove Albion í ensku A-deildinni.
„Planið var að leggja landsliðsskóna á hilluna eftir EM en eftir að ég talaði við Sarinu [Wiegman landsliðsþjálfara Englands] var ljóst að ég yrði ekki hluti af lokahópnum.
Það var sem rýtingur í hjartað en á sama tíma var þungu fargi af mér létt. Þetta var tilfinningaþrungin stund fyrir okkur bæði en við virtum það sem við vorum að segja hvor við aðra,“ skrifaði Kirby í yfirlýsingu sem hún birti á samfélagsmiðlum.