Enska knattspyrnufélagið Manchester City hefur náð samkomulagi við AC Milan um kaupin á Hollendingnum Tijjani Reijnders. Fabrizio Romano greinir frá þessu á samfélagsmiðlum sínum.
Talið er að Manchester City muni borga 59 milljónir punda fyrir Hollendinginn sem mun skrifa undir fimm ára samning hjá félaginu.
Reijnders, sem er 26 ára, gekk til liðs við AC Milan fyrir tveimur árum frá AZ Alkmaar í heimalandinu. Hann hefur spilað lykilhlutverk á miðju liðsins en hann skoraði 15 mörk í öllum keppnum á tímabilinu og var valinn.
Kevin De Bruyne er á förum frá City og er félagið því í leit að miðjumönnum. Franski miðjumaðurinn Rayan Cherki er sömuleiðis nálægt því að ganga í raðir liðsins.