Portúgalinn Bruno Fernandes staðfesti ákvörðun sína um að vera um kyrrt hjá Manchester United þrátt fyrir gott tilboð frá sádiarabíska félaginu Al-Hilal.
„Forseti Al-Hilal hringdi í mig fyrir mánuði síðan og spurði mig um möguleikann á því að ég færi þangað,“ sagði Fernandes á blaðamannafundi í gær.
Fernandes sagði að Ruben Amorim, stjóri Manchester United, hafi beðið hann um að vera áfram hjá félaginu.
„Ég þurfti að bíða um stund til að hugsa um framtíðina. Eins og ég hef alltaf sagt, væri ég tilbúinn að fara ef United teldi það vera fyrir bestu.
Ég ræddi við Ruben Amorim, sem bað mig um að vera áfram hjá félaginu. Ég talaði við forráðamenn félagsins sem sögðu mér að þeir vildu ekki selja mig, aðeins ef mig langaði til að fara,“ bætti Fernandes við.
„Ég vil spila áfram á hæsta stigi, að spila í stóru keppnunum því ég finn enn að ég er fær um það,“ sagði Fernandes.
Portúgal mætir Þýskalandi í undanúrslitum Þjóðadeildarinnar í kvöld.