Carrick rekinn frá enska félaginu

Michael Carrick.
Michael Carrick. AFP/Oli Scarff

Englendingurinn Michael Carrick hefur verið rekinn úr starfi sem stjóri Middlesbrough í ensku B-deildinni í knattspyrnu.

Carrick tók við Middlesbrough árið 2022 og náði umspilssæti á fyrsta ári þegar liðið hafnaði í fjórða sæti. Liðinu mistókst hins vegar að tryggja sér sæti í úrvalsdeildinni þegar það tapaði fyrir Coventry í undanúrslitum umspilsins.

Middlesbrough hefur rétt misst af umspilssæti síðustu tvö tímabil og hefur Carrick því verið látinn fara. Hann var með samning til ársins 2027.

Carrick lék lengi vel með Manchester United og stýrði sömuleiðis liðinu til bráðabirgða í þrjá leiki árið 2021 eftir að Ole Gunnar Solskjær var látinn fara frá félaginu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert