Arsenal í viðræðum við lykilmann

Thomas Partey í skallabaráttu í leik Arsenal gegn París SG …
Thomas Partey í skallabaráttu í leik Arsenal gegn París SG í Meistaradeild Evrópu. AFP/Franck Fife

Enska knattspyrnufélagið Arsenal hefur hafið viðræður við miðjumanninn Thomas Partey um nýjan samning.

Núverandi samningur Parteys, sem er 31 árs lykilmaður hjá Skyttunum, á að renna út í lok þessa mánaðar en hefur félagið áhuga á því að halda honum innan sinna raða.

Þetta kemur fram á heimasíðu Arsenal þar sem skýrt er frá því hvaða samningslausu leikmenn munu halda annað í lok mánaðarins.

Þeirra á meðal eru lánsmennirnir Raheem Sterling og Neto, en Sterling fer aftur til Chelsea og Neto til Bournemouth.

Auk þess halda Kieran Tierney og Jorginho annað þegar samningar þeirra renna sitt skeið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka