Chelsea hefur augastað á Frakkanum

Mike Maignan.
Mike Maignan. AFP/Isabella Bonotto

Enska knattspyrnufélagið Chelsea er í viðræðum við AC Milan um franska markvörðinn Mike Maignan.

Fabrizio Romano greinir frá þessu á reikningi sínum á samfélagsmiðlinum X.

Samningur Maignan rennur út á næsta ári og gæti AC Milan neyðst til að selja hann.

Chelsea hefur verið í vandræðum með markmannsstöðuna undanfarin ár en Robert Sanchez og Filip Jörgensen hafa báðir staðið í rammanum fyrir Chelsea í vetur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert