Ný samkeppni fyrir Hákon?

Hákon Rafn Valdimarsson.
Hákon Rafn Valdimarsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hákon Rafn Valdimarsson, landsliðsmarkvörður og leikmaður Brentford, gæti verið að fá nýjan liðsfélaga til að keppast um markvarðarstöðuna.

Aðalmarkvörður Brentford, Mark Flekken, er nálægt því að ganga til liðs við Bayer Leverkusen í Þýskalandi.

Samkvæmt SkySports hefur Brentford áhuga á að fá Caoimhin Kelleher, varamarkvörð Liverpool, sem nýjan aðalmarkvörð félagsins.

Kelleher, sem er 26 ára, vill berjast um aðalmarkvarðarstöðu hjá Liverpool en koma markvarðarins Giorgi Mamardashvili frá Valencia í sumar gæti þýtt að Írinn vilji róa á önnur mið.

Caoimhin Kelleher.
Caoimhin Kelleher. AFP/Glyn Kirk
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert