United með augastað á stjörnu Lundúnaliðsins

Bryan Mbuemo.
Bryan Mbuemo. AFP/Justin Tallis

Manchester United hefur mikinn áhuga á að fá Bryan Mbeumo, leikmann Brentford, í sínar raðir. Það er talkSport sem greinir frá þessu.

Mbeumo, sem er 25 ára, átti stórkostlegt tímabil með Lundúnaliðinu. Hann skoraði 20 mörk og lagði upp að auki sjö í 38 leikjum.

Talið er að Brentford vilji fá 50 milljónir punda fyrir Mbeumo sem á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert