Marcus Rashford er snúinn aftur til Manchester United eftir stutta lánsdvöl hjá Aston Villa.
Rashford var ekki inni í myndinni hjá Ruben Amorim, stjóra United, og fór á lán í janúarglugganum til Aston Villa. Rashford skoraði fjögur mörk og lagði upp sex í 17 leikjum fyrir Villa.
Samkvæmt Fabrizio Romano er hægt að fá hinn 27 ára gamla Rashford á 40 milljónir punda.