Þrumufleygur jafnaði metin (myndskeið)

Wolves og Brentford skildu jöfn, 1:1, í 38. og síðustu umferð ensku úrvalsdeildar karla í knattspyrnu í gær.

Bryan Mbuemo kom Brentford yfir á 20. mínútu áður en Marshall Munetsi jafnaði metin með þrumufleyg á 75. mínútu.

Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann Sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka