Ruben Amorim, knattspyrnustjóri Manchester United, baðst afsökunar á tímabili félagsins eftir 2:0-sigur liðsins gegn Aston Villa í gær.
„Fyrst og fremst langar mig að biðjast afsökunar á þessu tímabili, ég veit að það var mjög erfitt að styðja okkur í mörgum leikjum,“ sagði Amorim í gær.
Amorim lofaði þó stuðningsmönnum félagsins að góðir dagar væru fram undan á Old Trafford.
„Fyrir sex mánuðum eftir fyrstu þrjá leikina undir minni stjórn, þar af tvo sigra og eitt jafntefli, þá sagði ég við ykkur að stormur væri á leiðinni. Í dag, eftir þetta hörmungartímabil, langar mig að segja ykkur að góðu dagarnir eru fram undan,“ bætti Amorim við.
Manchester United endaði tímabilið í 15. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 42 stig en félagið hefur aldrei endað neðar frá stofnun hennar árið 1992.