Tvenna og heljarstökk (myndskeið)

Antoine Semenyo gerði bæði mörk Bournemouth er liðið sigraði Leicester, 2:0, á heimavelli í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Semenyo fagnaði fallegu öðru marki sínu með því að skella sér í heljarstökk.

Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann Sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert