Englandsmeistarar Liverpool og bikarmeistarar Crystal Palace skildu jafnir, 1:1, á Anfield í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í kvöld.
Ibraima Sarr kom Palace yfir snemma leiks og vont varð verra fyrir Liverpool þegar Ryan Gravenberch fékk rautt spjald í seinni hálfleik.
Þrátt fyrir liðsmuninn jafnaði Mo Salah undir lokin með skemmtilegu karatemarki og skiptu liðin með sér stigunum, áður en Liverpool fékk Englandsmeistarabikarinn í hendurnar.
Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann Sport.