Gæsahúð fyrir stuðningsmenn Liverpool (myndskeið)

Leikmenn Liverpool tóku við Englandsmeistarabikarnum á heimavelli sínum í dag eftir 1:1-jafnteflið við Crystal Palace.

Liverpool endaði með 84 stig, tíu stigum meira en Arsenal, og var með gott forskot stóran hluta leiktíðarinnar.

Myndskeið með hápunktum Liverpool á leiktíðinni og svo bikarafhendingunni má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann Sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert