Joel Ward lék sinn síðasta heimaleik fyrir Crystal Palace í kvöld en hann hefur verið hjá félaginu frá því árið 2012 og spilað meira en 330 deildarleiki á þeim tíma.
Ward var tekinn af velli í seinni hálfleik í 4:2-sigrinum á Wolves í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld og fór grátandi af velli, þar sem tilfinningarnar báru hann ofurliði.
Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.