Fulham vann góðan sigur gegn Brentford í Lundúnaslag í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu í dag.
Brentford er áfram í áttunda sæti með 55 stig en Fulham er með 54 stig í tíunda sæti.
Raúl Jiménez kom Fulham yfir á 16. mínútu. Aðeins sex mínútum síðar jafnaði Bryan Mbuemo metin.
Brentford fékk vítaspyrnu skömmu síðar og fór Mbuemo á punktinn en Bernd Leno varði frá honum. Rétt fyrir leikhlé náðu heimamenn forystu eftir mark frá Yoane Wissa. Staðan var því 2:1 fyrir Brentford í hálfleik.
Á 68. mínútu jafnaði Tom Cairney metin og tveimur mínútum síðar kom Harry Wilson gestunum yfir. Fleiri urðu ekki mörkin ekki og lokaniðurstaða því 3:2-sigur Fulham.
Hákon Rafn Valdimarsson var á bekknum fyrir Brentford allan leikinn.
Leicester fékk Ipswich í heimsókn og hafði betur, 2:0, í dag. Bæði lið eru fallin en Leicester er í 18. sæti með 25 stig og Ipswich situr í 19. sæti með 22 stig.
Jamie Vardy skoraði í sínum síðasta heimaleik fyrir félagið þegar hann kom Leicester yfir á 28. mínútu. Kasey McAteer tvöfaldaði síðan forystu Leicester á 69. mínútu og þar við sat.