Var heimsmeistarinn að kveðja?

Emi Martinez gæti verið á förum frá Aston Villa.
Emi Martinez gæti verið á förum frá Aston Villa. AFP/Oli Scarff

Emi Martinez, markvörður enska úrvalsdeildarfélagsins Aston Villa, gæti verið á förum frá félaginu en eftirtektavert þótti hvernig hann kvaddi áhorfendur eftir síðasta heimaleik Aston Villa í gær.

Martinez táraðist og veifaði til stuðningsmanna í stúkunni á Villa Park eftir sigur Aston Villa á Tottenham í gærkvöld.

Jamie Redknapp og Roy Keane voru sérfræðingar í setti hjá Sky Sports í gær og ræddu þeir framtíð Martinez.

„Hann er stórkostlegur leikmaður og það væri synd ef hann er að fara. Það lítur allt út fyrir að hann sé að kveðja,“ sagði Redknapp.

„Hann getur verið svolítið pirrandi leikmaður stundum. Það yrði mikill missir fyrir Aston Villa að missa hann,“ sagði þá Keane.

Martinez hefur verið þrálátlega orðaður við félög í Sádí-Arabíu upp á síðkastið en Unai Emery, knattspyrnustjóri Aston Villa, vildi ekkert tjá sig um málið á blaðamannafundi eftir leikinn í gær.

Martinez, sem er 32 ára, hefur verið frábær með Aston Villa síðan hann kom þangað árið 2020 frá Arsenal. Þá varð hann heimsmeistari með Argentínu árið 2022.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert