Crystal Palace er enskur bikarmeistari karla í knattspyrnu eftir 1:0-sigur gegn Manchester City í úrslitaleik á Wembley í dag.
Eberechi Eze skoraði mark Palace á 16. mínútu eftir góða skyndisókn liðsins.
Eftir rúman hálftíma leik fékk Manchester City vítaspyrnu. Egyptinn Omar Marmoush fór á punktinn en Dean Henderson varði frá honum.
Þrátt fyrir mikla pressu City í síðari hálfleik hélt Crystal Palace út og vann 1:0-sigur.
Þetta er í fyrsta skipti sem Crystal Palace er enskur bikarmeistari en félagið hafði tvisvar áður komist í úrslit, árin 2016 og 1990.