Manchester City mátti þola 1:0-tap gegn Crystal Palace í enska bikarnum í knattspyrnu á Wembley í dag.
City fékk vítaspyrnu í fyrri hálfleik og vakti athygli hjá mörgum að Erling Haaland tók ekki vítaspyrnuna. Egyptinn Omar Marmoush fór á punktinn en Dean Henderson varði frá honum.
Wayne Rooney, fyrrverandi leikmaður Manchester United, velti því fyrir sér eftir leik af hverju Haaland tók ekki vítaspyrnuna.
„Erling Haaland er heimsklassa framherji, en þegar við erum að tala um Lionel Messi og Cristiano Ronaldo, það er ekki séns að þeir hefðu gefið boltann burt,“ sagði Rooney í breska ríkissjónvarpinu eftir leik.
„Það er það sem aðgreinir þessa tvo leikmenn frá Erling Haaland eða Kylian Mbappé,“ bætti Rooney við.
Pep Guardiola, stjóri Manchester City, bjóst við að Haaland myndi taka vítið og sagði að leikmennirnir á vellinum hefðu tekið ákvörðunina.
„Ég hélt að hann myndi taka það,“ sagði Guardiola í viðtali eftir leik.