Sáu um Tottenham í seinni hálfleik

Boubacar Kamara fagnar marki sínu.
Boubacar Kamara fagnar marki sínu. AFP/Darren Staples

Aston Villa sigraði Tottenham, 2:0, á heimavelli í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Eftir markalausan fyrri hálfleik kom Ezri Konza Villa-mönnum yfir á 59. mínútu og Boubacar Kamara bætti við öðru marki á 73. mínútu.

Villa er í fjórða sæti með 66 stig, eins og Newcastle í þriðja sæti. Tottenham er í 17. sæti með 38 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert