Falleg afgreiðsla í bláhornið (myndskeið)

Ezri Konza og Boubacar Kamara sáu um að gera mörk Aston Villa er liðið sigraði Tottenham á heimavelli, 2:0, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Konza afgreiddi boltann í markið eftir hornspyrnu og Kamara skoraði með fallegu skoti utarlega í teignum.

Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert