Þrettán ára dvöl lýkur í sumar

Joel Ward í baráttu við Gylfa Þór Sigurðsson í leik …
Joel Ward í baráttu við Gylfa Þór Sigurðsson í leik Crystal Palace og Tottenham árið 2013. AFP/Glyn Kirk

Enski knattspyrnumaðurinn Joel Ward yfirgefur Crystal Palace þegar samningur hans rennur sitt skeið í sumar eftir 13 ára dvöl hjá félaginu.

Ward hefur lifað tímana tvenna hjá Palace en þegar hann gekk til liðs við félagið sumarið 2012 var liðið á botni ensku B-deildarinnar.

Um vorið komst liðið hins vegar upp í úrvalsdeildina og hefur verið þar síðan. Alls hefur hinn 35 ára gamli Ward leikið 304 leiki fyrir Palace í úrvalsdeildinni og 25 í B-deildinni.

Hann hefur einungis spilað einn deildarleik og einn leik í deildabikarnum á tímabilinu en gæti unnið sinn fyrsta bikar með félaginu um helgina þegar Palace mætir Manchester City í úrslitaleik ensku bikarkeppninnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert