Tekur enga áhættu gegn Chelsea

Diogo Dalot er einn fjórmenninganna sem gera sér vonir um …
Diogo Dalot er einn fjórmenninganna sem gera sér vonir um að ná úrslitaleiknum gegn Tottenham. AFP/Oli Scarff

Ruben Amorim, knattspyrnustjóri Manchester United, kveðst ekki ætla að taka áhættu með neinn þeirra leikmanna sem eru tæpir vegna meiðsla þegar liðið sækir Chelsea heim í ensku úrvalsdeildinni á föstudagskvöldið.

Manchester United og Tottenham mætast í úrslitaleik Evrópudeildarinnar næsta miðvikudag og þar er gríðarlega mikið í húfi því sigurliðið vinnur sér keppnisrétt í Meistaradeildinni á næsta tímabili.

Amorim sagði á fréttamannafundi í dag að um fjóra leikmenn væri að ræða sem yrðu ekki með gegn Chelsea en gætu náð úrslitaleiknum gegn Tottenham.

Það eru Matthijs de Ligt, Diogo Dalot, Leny Yoro og Ayden Heaven.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert