Andy Robertson leikmaður Liverpool skoraði mark sem dæmt var af er liðið mætti Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta um helgina.
Var markið dæmt af vegna brots hjá Ibrahima Konaté í aðdragandanum. Lét Konaté hinn unga Myles Lewis-Skelly hjá Arsenal finna fyrir því.
Eiður Smári Guðjohnsen og Vilhjálmur Freyr Hallsson voru gestir Harðar Magnússonar í Vellinum á Símanum sport og ræddu þeir m.a. atvikið. Að mati Eiðs eiga svona taktar ekki heima á fótboltavellinum.
Umræðurnar má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.