Villa keyrði yfir Newcastle á tíu mínútum

Dan Burn tæklar Matty Cash í dag.
Dan Burn tæklar Matty Cash í dag. AFP/Darren Staples

Aston Villa vann í dag 4:1-heimasigur á Newcastle í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Staðan í hálfleik var 1:1 og skoraði Villa þrjú mörk á tíu mínútna kafla í seinni hálfleik.

Aston Villa var ekki lengi að byrja leikinn og var það strax á 1. mínútu þegar Ollie Watkins skoraði eftir misheppnaða hreinsun gestanna. Boltinn fór af varnarmanninum Fabian Schär og í nærhornið fram hjá Nick Pope í markinu.

Watkins fékk tækifæri til að bæta í forystuna en boltinn endaði í þverslánni. Fyrri hálfleikurinn mjög jafn og var það svo á 18. mínútu þegar Fabian Schär skoraði með skalla á nærstöngina eftir frábæra fyrirgjöf frá Harvey Barnes.

Fyrri hálfleikurinn var á báða boga en heimamenn voru þeir sem fengu betri færi. Strax eftir mark Newcastle átti Marco Asensio skot rétt fram hjá eftir hraða sókn. Watkins var aftur nálægt því að bæta í forystuna þegar hann átti skalla í stöng en mörkin voru ekki fleiri á fyrstu 45. og staðan þar jöfn í hálfleik.

Heimamenn voru með öll tök á leiknum í byrjun seinni og komust þeir aftur í yfir á 64. mínútu þar sem bakvörðurinn Ian Maatsen skaut boltanum í fjærhornið eftir undirbúning Ollie Watkins. Á 73. mínútu kom þriðja markið þegar Jacob Ramsey átti fyrirgjöf sem fór af Dan Burn varnarmanni Newcastle og í netið.

Fjórða markið kom strax á 75. mínútu þegar varamaðurinn Amadou Onana þrumaði boltanum í samskeytin eftir að Rogers náði að pota boltanum til hans rétt fyrir utan teig. Newcastle átti engin svör og sigur heimamanna kemur þeim í sjötta sætti við hlið Nottingham Forrest með 57 stig, sem á leik inni 

Aston Villa 4:1 Newcastle opna loka
90. mín. Donyell Malen (Aston Villa) á skot framhjá Hröð sókn heimamanna endar með skoti framhjá.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert