Rautt spjald og vafasamir dómar (myndskeið)

Crystal Palace og Bournemouth gerðu í dag markalaust jafntefli í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Chris Richards hjá Palace fékk rautt spjald í fyrri hálfleik. Voru Palace-menn allt annað en sáttir með að Alex Scott hafi ekki fengið sitt annað gula spjald skömmu áður.

Heimamenn voru svo aftur pirraðir í seinni hálfleik þegar Tyler Adams slapp við annað gult spjald.

Tilþrif og vafasama dóma leiksins má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert