Newcastle skoraði fimm og upp í þriðja

Liðsmenn Newcastle fagna marki í kvöld.
Liðsmenn Newcastle fagna marki í kvöld. AFP/Andy Buchanan

Newcastle vann afar sannfærandi heimasigur á Crystal Palace, 5:0, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Newcastle er í þriðja sæti deildarinnar með 59 stig. Palace er í 12. sæti með 43 stig.

Jacob Murphy kom Newcastle á bragðið á 14. mínútu eftir sendingu frá Keiran Tripper. Palace fékk gott tækifæri til að jafna á 33. mínútu en Nick Pope í marki Newcastle varði ömurlegt víti frá Eberechi Eze.

Aðeins tveimur mínútum síðar skoraði Marc Guehi sjálfsmark og kom Newcastle í 2:0. Harvey Barnes gerði þriðja markið á annarri mínútu uppbótartímans í fyrri hálfleik og Fabian Schär gerði fjórða markið áttundu mínútu uppbótartímans. Var staðan í hálfleik því 4:0.

Sænski markahrókurinn Alexander Isak sá um að gera eina markið í seinni hálfleik á 58. mínútu og í leiðinni innsigla fimm marka sigur deildabikarmeistaranna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert