Gat ekki horft á vítakeppnina

Nuno Espírito Santo átti erfitt með að horfa.
Nuno Espírito Santo átti erfitt með að horfa. AFP/Andy Buchanan

Nuno Espírito Santo, knattspyrnustjóri Nottingham Forest, viðurkennir að hann hafi ekki getað horft á vítaspyrnukeppnina gegn Ipswich Town þegar Forest hafði betur í 16-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar í gærkvöldi.

Staðan eftir venjulegan leiktíma og framlengingu var 1:1 og Forest vann svo 5:4 í vítaspyrnukeppninni eftir að hafa skorað úr öllum spyrnum sínum. Matz Sels, markvörður Forest, varði svo spyrnu Jacks Taylors og tryggði liðinu sigur.

„Fyrir hvern einasta drátt í bikarkeppninni þurfum við að æfa vítaspyrnur og við héldum sömu uppröðun og gegn Exeter. Við stóðum okkur mjög vel og þetta voru góð víti.

Þetta er hluti af undirbúningnum. Á sama tíma eru markverðirnir að æfa sig og fá eins miklar upplýsingar og hægt er. Þetta er skuldbinding. En þetta er alls ekki þægilegt.

Kvíði, taugaveiklun og frekari blanda af tilfinningum. Ég reyni að horfa ekki og bíð bara eftir hávaðanum! Markvarslan hjá Matz Sels var risastór fyrir okkur.

Leikmennirnir stóðu sig vel. Þetta voru góðar vítaspyrnur og Matz reyndist okkur stórkostlega,” sagði Espírito Santo á fréttamannafundi eftir leikinn í gærkvöldi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert