Vestri tók á móti Þór frá Akureyri í átta liða úrslitum bikarkeppni karla í fótbolta á Ísafirði í kvöld og vann 2:0. Er Vestri þar með búið að tryggja sér sæti í undanúrslitum.
Fyrsti hálftíminn í leiknum fer seint í sögubækurnar fyrir skemmtun, það gerðist ekkert. Vestri hélt í boltann án þess að skapa sér neitt og Þór varðist vel og lokaði á allt. Það var hins vegar á 31. mínútu að Vestri fékk hornspyrnu.
Guðmundur Arnar Svavarsson tók hornspyrnu frá hægri og gaf á fjærstöngina á Eið Aron Sigurbjörnsson sem skallaði boltann á Gustav Kjeldsen sem kláraði snyrtilega í markið, 1:0 fyrir Vestra.
Það tók heimamenn ekki nema fimm mínútur að tvöfalda forystuna. Eiður Aron átti langa sendingu í gegnum vörn Þórs og Gunnar Jónas Hauksson komst upp að endamörkum og átti glæsilega sendingu á fjærstöng Vladimir Tufegdzic sem var þar mættur og gat ekki annað en skorað, renndi sér á boltann og setti hann í autt markið, 2:0. Frábært spil hjá heimamönnum í seinna markinu.
Þór var mun sterkari í seinni hálfleik. Þórsarar héldu vel í boltann og pressuðu vel. Þeir áttu nokkur ágætis tækifæri án þess þó að skora. Það var síðan umdeilt atvik í byrjun hálfleiksins þegar Sverrir Páll Ingason virtist vera togaður niður þegar hann var að sleppa í gegn, en ekkert dæmt.
Besta færið fékk Sverrir Páll á 70. mínútu þegar Nökkvi Hjörvarsson sendi hann í gegn en Benjamin Schubert varði frábærlega frá Sverri Páli. Clement Bayhia átti svo ágætis skot sem Schubert varði líka.
Þór reyndi hvað það gat til að skora en Vestri varðist vel. 2:0 fagmannlegur sigur Vestra staðreynd í kvöld.
Vestri var með meiri gæði í kvöld og kláraði því leikinn og kom sér í undanúrslit í annað skipti í sögu félagsins. Þórsarar geta samt farið bjartsýnir héðan norður, því þeir spiluðu ágætis leik.