Dregið var til 1. umferðar undankeppni Sambandsdeildar karla í knattspyrnu í dag. Drátturinn fór fram í höfuðstöðvum evrópska knattspyrnusambandsins, UEFA, í Nyon í Sviss og er nú ljóst hverjum Víkingur og Valur mæta.
Víkingur fer til Kósóvó og mætir FC Malisheva. Fyrri leikurinn fer fram þann 10. júlí í Kósóvó og seinni leikurinn er í Víkinni þann 17. júlí.
Valur mætir Flora Tallinn frá Eistlandi. Fyrri leikurinn fer fram á Hlíðarenda þann 10. júlí og seinni leikurinn í Tallinn, 17. júlí.
Víkingur mætti Flora Tallinn í 3. umferð undankeppninnar á síðasta ári. Fyrri leikurinn endaði með 1:1-jafntefli á Íslandi og Víkingur vann 2:1-sigur í Eistlandi.