Katrín Ásbjörnsdóttir, leikmaður Breiðabliks og kærasta knattspyrnumannsins Damir Muminovic, gerði grín að fótbolta.net sem greindi frá því í gær að Damir væri á leið til Breiðabliks.
Samkvæmt fótbolta.net er Damir aftur á leið til Breiðabliks en hann hefur leikið með DPMM á Brúnei í vetur.
„Það er gaman þegar blaðamenn vita meira en konan og sjálfur maðurinn Damir,“ skrifar Katrín á samfélagsmiðlinum X í gær.
Bæði Damir og Katrín urðu Íslandsmeistarar með Breiðabliki á síðustu leiktíð.
Verst geymda 😂 það er gaman þegar blaðamenn vita meira en konan og sjálfur maðurinn Damir 🥰 segið mér fleiri fréttir. pic.twitter.com/jEn1kllAUb
— Katrín Ásbjörns (@katrin_asbjorns) June 8, 2025