Íþróttadeild Morgunblaðsins og mbl.is heldur áfram að gramsa í myndasafni Morgunblaðsins og birta á mbl.is á laugardögum.
Eyjamaðurinn Sigurvin Ólafsson er í fámennum hópi sem tekist hefur að vinna Íslandsmótið í knattspyrnu með þremur mismunandi liðum. Sigurvin varð Íslandsmeistari með uppeldisfélaginu ÍBV 1997 og í lykilhlutverki. Hann lék fjóra leiki þegar liðið varð meistari árið eftir. Hann varð eftir aldamótin einnig meistari með KR 2002, 2003 og með FH 2005, 2006.
Á meðfylgjandi mynd glímir hann við erfiðar vallaraðstæður í Frostaskjólinu haustið 2001 þegar hann var á sínu fyrsta tímabili hjá KR. Ágúst Gylfason er einnig á myndinni í búningi Fram en þeir þjálfa nú báðir í næst efstu deild. Sigurvin hjá Þrótti og Ágúst er nýlega tekinn við Leikni í Breiðholti.
Myndina tók Kjartan Þorbjörnsson eða Golli og birtist hún í íþróttablaði Morgunblaðsins hinn 18. september 2001.
Vallaraðstæður vöktu athygli en leikurinn hafði mikla þýðingu í neðri hluta deildarinnar. KR-völlurinn náði ekki að drena nægilega eftir langar rigningar en slíkt sást stundum á völlum landsins á haustin. Síðasti grasleikurinn í bili alla vega hefur farið fram á KR-vellinum. Þar standa nú yfir framkvæmdir og verður lagt gervigras á völlinn eins og fram hefur komið.
„Þrátt fyrir aðstæður væru afleitar á KR-velli höfðu áhorfendur nokkuð gaman af - svona innst inni. Völlurinn var svo blautur að menn vissu aldrei hvað gerðist, hvort boltinn myndi skjótast í bleytunni eða stoppa. Svona aðstæður bjóða hættunni heim, ekki einasta er hætt við að menn geri mistök, reikni hegðun knattarins ekki rétt, heldur er einnig hætta - og hún er mun alvarlegri - á meiðslum því sárasaklausar tæklingar geta hæglega orðið stórhættulegar,“ skrifaði Skúli Unnar Sveinsson meðal annars í umfjöllun sinni um leikinn í blaðinu.
Sigurvin var um tíma í unglingaliði Stuttgart í Þýskalandi en ferill hans á knattspyrnuvellinum hefði getað orðið enn glæsilegri en raunin varð. Skelfilegt fótbrot sumarið 1998 kom í veg fyrir það. Hann lék 7 A-landsleiki fyrir Íslands hönd. Í efstu deild lék hann einnig fjóra leiki með Fylki árið 2012.
Ágúst Gylfason lék með Val, Fram, KR og Fjölni hér heima og Brann í Noregi. Hann lék 6 A-landsleiki.