Þorsteinn Halldórsson var spurður út í atvikið ótrúlega þegar þjóðsöngur Frakklands ómaði á Laugardalsvelli í gær á blaðamannafundi í höfuðstöðvum KSÍ á Laugardalsvelli eftir leikinn.
Þegar franski þjóðsöngurinn var leikinn blandaðist bein útsending á bæði Rúv. og svo inngangslag KSÍ inn í þjóðsönginn við litla hrifningu Frakka.
Syanie Dalmat, blaðamaður hjá franska miðlinum L'Equipe, var í blaðamannastúkunni á Laugardalsvelli og tjáði sig um atvikið á samfélagsmiðlinum X.
„Ég skildi ekkert hvað var í gangi,“ sagði Þorsteinn þegar hann var spurður út í atvikið ótrúlega.
„Þetta var pínlegt fyrir okkur,“ bætti landsliðsþjálfarinn við en leiknum lauk með nokkuð þægilegum sigri Frakklands, 2:0.