Forsetahjónin mættu í afmæli nýsköpunarfyrirtækis

Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, Halla Tómasdóttir og Hrönn Greipsdóttir.
Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, Halla Tómasdóttir og Hrönn Greipsdóttir. Ljósmynd/Aníta Eldjárn

Það var líf og fjör í Grósku þann 16. maí þegar KLAK - Icelandic Startups fagnaði 25 ára afmæli sínu með veglegri afmælisveislu. Veðrið lék við gesti og stemningin var einstaklega góð en viðburðurinn var vel sóttur af fjölbreyttum hópi fólks úr nýsköpunarumhverfinu á Íslandi.

Meðal gesta voru bæði fyrrverandi og núverandi starfsmenn KLAK, áhrifafólk úr viðskiptalífinu og margir sem hafa tengst starfi félagsins á einn eða annan hátt síðasta tvo og hálfan áratug.

Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri KLAK og Jenna Björk Guðmundsdóttir, verkefnastjóri …
Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri KLAK og Jenna Björk Guðmundsdóttir, verkefnastjóri hjá KLAK. Ljósmynd/Aníta Eldjárn

Heiðursgestur veislunnar var Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, sem flutti innblásið ávarp um það hugrekki sem þarf til að hafa áhrif. Með henni mætti eiginmaður hennar, Björn Skúlason, sem sjálfur hefur verið virkur á þessum vettvangi meðal annars sem þáttakandi í Startup SuperNova á vegum KLAK árið 2020 þegar hann vann að því að byggja upp sitt eigið nýsköpunarfyrirtæki.

Forsetahjónin voru spræk í afmælisveislu KLAK.
Forsetahjónin voru spræk í afmælisveislu KLAK. Ljósmynd/Aníta Eldjárn

Afmælishátíðin markaði jafnframt lok nýsköpunarvikunnar (Iceland Innovation Week 2025) sem hefur fest sig í sessi sem árlegur hápunktur frumkvöðlastarfs á Íslandi. Það var einkar viðeigandi í ljósi þess að tveir fyrrverandi starfsmenn KLAK, þær Melkorka Sigríður Magnúsdóttir og Edda Konráðsdóttir, stóðu að stofnun hátíðarinnar.

Ásta Sóllilja Guðmundssdóttir flutti ræðu.
Ásta Sóllilja Guðmundssdóttir flutti ræðu. Ljósmynd/Aníta Eldjárn

„Við hjá KLAK - Icelandic Startups erum þakklát fyrir þann mikla stuðning sem KLAK hefur notið í gegnum árin og fögnum því að fá að deila þessum áfanga með þeim sem hafa verið hluti af ferðalaginu, hvort sem það var í gegnum verkefni, ráðgjöf, samstarf eða stuðning. Framtíðin er björt og við hlökkum til næstu 25 ára í þágu nýsköpunar. Við viljum einnig þakka þeim sem mættu í afmælið og gerðu daginn að því sem hann var, sannkallaðri veislu.“ segir Atli Björgvinsson, markaðsstjóri KLAK - Icelandic startups.

DJ JAY-O þeytti skífum.
DJ JAY-O þeytti skífum. Ljósmynd/Aníta Eldjárn

KLAK - Icelandic startups er óhagnaðardrifið félag sem hjálpar frumkvöðlum að raungera hugmyndir sínar, fjölgar sprota-fyrirtækjum sem byggja á hugviti og eykur þannig sjálfbæra verðmætasköpun Íslands.

Ljósmynd/Aníta Eldjárn
Ljósmynd/Aníta Eldjárn
Það var fjölmennt í afmælisveislu KLAK - Icelandic Startups.
Það var fjölmennt í afmælisveislu KLAK - Icelandic Startups.
Sigrún Guðjónsdóttir og Halla Tómasdóttir
Sigrún Guðjónsdóttir og Halla Tómasdóttir Ljósmynd/Aníta Eldjárn
Ljósmynd/Aníta Eldjárn
Ljósmynd/Aníta Eldjárn
Girnilegar kræsingar voru á boðstólum.
Girnilegar kræsingar voru á boðstólum. Samsett mynd
Ljósmynd/Aníta Eldjárn
Ljósmynd/Aníta Eldjárn
Ljósmynd/Aníta Eldjárn
Halla flutti ávarp um hugrekki sem þarf til að hafa …
Halla flutti ávarp um hugrekki sem þarf til að hafa áhrif. Ljósmynd/Aníta Eldjárn
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda