Einbýlishúsin á Seltjarnarnesi eru eftirsótt. Haustið 2022 var eitt slíkt auglýst til sölu við Fornuströnd. Um er að ræða 351.7 fm einbýli á tveimur hæðum sem reist var 1972. Nú hefur húsið verið selt.
Húsið var endurnýjað mikið árið 2007 og var þá skipt um innréttingar, gólfefni og fleira sem gerir húsið ennþá eigulegra. Glerhandrið var sett meðfram stiga á milli hæða. Stórar stofur prýða húsið og eru hvítar sprautulakkaðar innréttingar í eldhúsi með öllu tilheyrandi.
Gengið er upp á efri hæð um fallegan stiga. Stórar stofur og eldhús með útsýni. Loft er tekið niður og góð hljóðvist er í eigninni. Eldhús með stein á borðplötu. Mikið skápapláss og pláss fyrir tvo ísskápa.
Garðurinn í kringum húsið hefur líka verið endurnýjaður mikið og svalagólf upphitað. Í garðinum er heitur pottur og falleg lýsing.
Hrefna Kristín Jónsdóttir og Egill Þorvarðarson eru kaupendur hússins og greiddu þau 305.000.000 kr. fyrir einbýlið. Þau keyptu húsið af Laufeyju Ásu Njálsdóttur og Baldvini Valtýssyni.
Smartland óskar Hrefnu og Agli til hamingju með húsið!