Örn V. Kjartansson framkvæmdastjóri M3 hefur starfað í fasteignageiranum í yfir 20 ár og segir að íbúðirnar á Heklureitnum séu á heimsmælikvarða. Í íbúðunum eru sérsmíðaðar innréttingar frá Ítalíu.
„Heklureiturinn, sem er Laugavegur 168 til 174, er einn mest spennandi miðborgarreiturinn sem er í uppbyggingu í dag að mínu mati. Reiturinn liggur nálægt öllum helstu samgönguæðum. Það er stutt inn á Sæbraut, Miklubraut og Kringlumýrarbraut og örstutt að ganga í miðbæinn, en er samt nógu langt frá til þess að verða ekki fyrir truflun þegar miðborgarlífið er í fullri sveiflu,“ segir Örn V. Kjartansson framkvæmdastjóri M3, sem leiðir uppbyggingu á Heklureit þar sem úrval íbúða þykir mjög gott. „Við erum að bjóða allt frá tveggja herbergja íbúðum upp í stórar þakíbúðir sem og íbúðir á tveimur hæðum. Úrval sem ætti að henta nánast fyrir allar fjölskyldugerðir,“ segir Örn.
Í fyrsta áfanga verða 82 íbúðir á Laugavegi 168 sem verða til afhendingar haustið 2025. Einnig er verið að klára að steypa upp Laugaveg 170 þar sem verða 100 íbúðir, þær verða til afhendingar síðla næsta sumars.
Heildaruppbyggingin mun skila yfir 400 íbúðum alveg við miðborgina og verður umbylting í borgarmyndinni á þessum stað að mati margra.
Örn stofnaði M3 árið 2015 og hefur verið í fasteignageiranum í yfir 20 ár. „Það hefur verið í nægu að snúast, en við erum að komast á mjög spennandi stað um þessar mundir með reitinn, þar sem við erum komin með tvær glæsilegar standsettar sýningaríbúðir.“
Geturðu útskýrt það nánar?
„Þakíbúðirnar okkar eru dæmi um þessi miklu gæði, en þar er lofthæðin mikil. Allur frágangur er einstakur og svo eru það vandaðar, sérsmíðaðar ítalskar innréttingar sem gera gæfumuninn að mínu mati. Við erum með fjórar tegundir af þemum í efnisvali íbúðanna: Bjarma, Hlýju, Náttúru og Rökkur, svo allir ættu að finna eitthvað fyrir sinn smekk.
Ein af sýningaríbúðunum okkar er þakgarðsíbúð þar sem sjá má hversu langt er hægt að ganga með gæðin og hönnun. Svo erum við með eina hefðbundna íbúð einnig til sýnis. Hún er engu síðri en hinar íbúðirnar í húsinu, þar sem hún er einnig með sérsmíðaðri ítalskri innréttingu, innbyggðum baðtækjum og kvartssteini á borðunum, sem framleiddur er á Ítalíu.“
Ef fólk kemur nægilega snemma að kaupum á íbúðunum er hægt að velja úr ofangreindum litaþemum. Íbúðirnar eru allt frá 50 fermetrum að stærð upp í þessar stóru þakgarðsíbúðir og allt þar á milli að hans sögn. „Þakgarðsíbúðirnar eru með 40 fm til 90 fm þaksvölum, sem eru bæði með sérstökum þakflísum og gróðri á þakinu. Þú ert þannig með gífurlega vandað útisvæði út af fyrir þig í þessum íbúðum, þar sem gert er ráð fyrir heitavatnspottum og fleiru sem gaman er að hafa í þakgarðinum heima.
Þessar íbúðir eru margar með miklu meiri lofthæð en gengur og gerist. Innréttingarnar á baðherbergjum og eldhúsi eru algjörlega til fyrirmyndar. Við bjóðum upp á steinvaska inni á böðunum og innréttingar sem falla vel inn í umhverfið.
Eldhúsin eru búin mjög góðum eldhústækjum. Þar sem helluborð af stærri gerð má finna og háf sem fer ofan í tækin, stærri tegund ísskápa og nánast hvert sem litið er finnur þú það besta sem völ er á. Íbúðirnar koma allar með tengjum fyrir rafmagnsgardínur og svona gæti ég lengi áfram talið.“
Er ekki hellingsvinna að halda utan um svo umfangsmikið verkefni?
„Þegar verkefnin eru svona skemmtileg, þá eru þau vanalega ekki mikil vinna. Verkefnið hefur gengið mjög vel og er lykilatriðið í öllu svona að hafa gott fólk með sér. Ég hef verið svo lánsamur að vera umkringdur miklu fagfólki í þessu verkefni sem öðrum. Við höfum einnig verið með verkefni í Eskiási í Garðabæ, sem er á síðustu metrunum. Þar erum við að byggja síðustu tvö stóru húsin í byggðinni þar sem finna má alls 291 íbúð.
Síðan er ég með í hönnun mjög spennandi reit sem ég vona að við getum byrjað á í sumar sem er Vesturhöfn, svæðið á milli Slippsins og Mýrargötu. Það er að mínu mati mjög spennandi verkefni að taka svona þéttingarreiti í gamla bænum og bjóða upp á metnaðarfullar íbúðir á besta stað. Eins erum við þátttakendur í verkefni uppi á Höfða sem er hluti af BM-Vallár-svæðinu, þar sem verið er að taka iðnaðarsvæði í borginni og breyta því í íbúðarhúsnæði. Verkefnin á borðunum eru því mismunandi eftir því hvernig lóðirnar liggja.“
Hluti af starfinu felur í sér að ferðast um heiminn og finna fyrirtæki sem bjóða upp á mikil gæði fyrir innréttingar íbúðanna sem hann er með í byggingu. „Við erum að kaupa innréttingar frá Cubo á Ítalíu, sem býður einnig upp á vandaðan ítalskan kvartsstein ofan á innréttingarnar úr eigin steinverksmiðju. Við tökum þetta efni beint frá þeim og hef ég heimsótt þessa verksmiðju sem er frábær. Kvarts er eitt endingarbesta og þrifalegasta efni sem völ er á fyrir eldhúsið, borðplötur sem eru gegnheilar og bletta- og viðhaldsfríar.“
Íbúar sem fjárfest hafa í glæsilegum húsakynnum á Heklureitnum hafa ratað í fjölmiðla á undanförnu og því forvitnilegt að vita hvernig fólk er að festa kaup á íbúðum á staðnum. „Þar sem íbúðirnar eru mjög misjafnar að stærð þá má segja að alls konar fólk sé að kaupa íbúðir á Heklureitnum, en yfirhöfuð má segja að barnafólk með lítil börn búi meira í útjaðri borga, þar sem meiri víðátta og fleiri leiksvæði má finna, en þeir sem kaupa íbúðir í þéttingu byggða. Þangað leita vanalega einstaklingar sem eru með uppkomin börn og vilja minnka við sig. Eins eru fyrstu kaupendur að íbúðum vanalega ekki að fara inn á markaðinn í þessar tegundir íbúða, vegna þess að þær eru aðeins dýrari en gengur og gerist. Svo ætli sannast sagna mætti ekki segja að á Heklureit búi fólk á besta aldri sem hefur efni á gæðum og langar að njóta lífsins án þess að þurfa að leggja mikla vinnu í viðhaldið.
Eins tel ég að fólk sem fjárfestir í gæðum sjái að það er að fá mikið fyrir peningana sína, þar sem við látum sem dæmi bílastæði í kjallara fylgja íbúðunum í stað þess að leigja þau út eins og algengt er að sé gert núna. Burtséð frá þessu öllu, þá gæti ég trúað því að við endum með góðan þverskurð af þjóðfélaginu á staðnum.“
Örn segir íbúðarkaup eina stærstu fjárfestingu sem fólk fari í á ævi sinni. „Að fjárfesta í íbúð á þéttingarreit í miðborginni, þar sem spáð er hækkandi fasteignaverði á komandi árum, þar sem ekki verður byggt meira í kring, er að mínu mati mjög góð fjárfesting til framtíðar,“ segir Örn.